top of page

Félagssamþykktir

 

1.grein

Félagið heitir Eyrbyggjar, hollvinasamtök Grundarfjarðar.

2.grein

Heimili þess og varnarþing er í Grundarfirði.

3. grein

Tilgangur og markmið samtakanna er að stuðla að eflingu byggðar, atvinnulífs og menningar í Grundarfirði og standa vörð um sögu svæðisins.

4.grein

Aðild að samtökunum er frjáls fyrir alla þá einstaklinga, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki, sem vilja hag Grundarfjarðarbæjar sem mestan og bestan.

5 grein

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.

6. grein

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. desember ár hvert, og skal boða til hans með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Fundarboðun á veraldarvefnum/ internetinu telst lögleg boðun.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Skýrsla stjórnar lögð fram

3. Reikningar lagðir fram til samþykktar

4. Lagabreytingar

5. Ákvörðun félagsgjalds

6. Kosning formanns

7. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga

8. Önnur mál

Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.

7.grein 

Stjórn samtakanna skal skipuð alls sjö manns, er skulu kosnir úr hópi félagsmanna til tveggja ára í senn. Kosið skal um þrjá stjórnarmenn á hverju ári. Engum er heimilt að sitja samfellt í stjórn lengur en þrjú kjörtímabil, þ.e. 6 ár alls.

 

8.grein

Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.

9.grein

Rekstrarafgangur/hagnaður af starfsemi samtakanna er ætíð fluttur á milli ára til að framfylgja tilgangi og markmiðum samtakanna eins og fram kemur í 2. grein.

10. grein

Formaður skal boða til stjórnarfundar og gegna öðrum venjulegum formannsstörfum. Stjórnin skiptir með sér verkum. Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari skal halda gerðabók um stjórnarfundi. Gjaldkeri heldur utan um sjóð samtakanna. Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meirihluti stjórnar mætir. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum.

 

11. grein

Félagsfundi skal boða svo oft sem þurfa þykir. Fundum skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Ef ágreiningur verður um fundarsköp, úrskurðar fundarstjóri, en hann getur borið ágreiningsefni undir atkvæði fundarmanna. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á félagsfundum, nema þar sem öðruvísi kann að verða ákveðið í lögum þessum.

12. grein

Ákvörðun um slit félagsins skal taka fyrir á aðalfundi.Tillagan telst samþykkt, hljóti hún 2/3 greiddra atkvæða fundarmanna. Verði samtökin leyst upp skulu gerðarbækur þess og skjöl afhent sveitarfélaginu til fullrar eignar og umráða. Ef samtökin á eignir skulu þær renna til Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Fellaskjóls, Grundarfirði.

13. grein

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, enda hafi tillögur þar að lútandi borist til stjórnar félagins, skriflega áður en aðalfundur er auglýstur, og skal gerð grein fyrir tillögum í fundarboði. Á aðalfundi er heimilt að gera breytingartillögur við löglega fram komnar tillögur til lagabreytinga, enda feli breytingartillögur ekki í sér óskyld efni við upprunalegu tillögurnar.Til að lagabreyting nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 greiddra atkvæða. Um leið og samþykkt er breyting á lögum skal ákveðið með fundarsamþykkt, hvenær breytingin tekur gildi.    1. útgáfa samþykkta samtakanna var samþykkt á ársfundi Eyrbyggja í Grundarfirði 29. júlí 2000.      2. útáfa, eins og hér er birt, var samþykkt á ársfundi 27. júlí 2001, með viðbót um kjör skoðunarmanna reikninga. 

3.útgáfa, eins og hér er birt, var samþykkt á aðalfundi 14.nóv. 2015 og gekk jafnframt í gildi sama dag.

Stjórn félagsins skipa

 

Halla Halldórsdóttir formaður

Anna Njálsdóttir varaformaður

Steinþóra Ágústsdóttir gjaldkeri

Signý Gunnarsdóttir ritari

Guðný Lóa Oddsdóttir

Emil Sigurðsson

Ólafur Hjálmarsson

bottom of page